Norræn bókasafnavika
8-14 november 2010

Ny side 1

norsk meny

Ny side 1

Ny side 1

   

Upplestur í ljósaskiptunum

 

Haust- og vetrardagarnir á Norðurlöndunum eru afskaplega stuttir. Hér áður fyrr, fyrir tíma sjónvarpsins og tölvunnar, var upplestur og sagnalestur á myrkum vetrarkvöldum vinsæl og útbreidd hefð.

Þann 8. nóvember 2010 hefst Norræna bókasafnsvikan í fjórtánda skipti með það fyrir augum að gæða norrænu sagnahefðina nýju lífi. Það er vika hlaðin upplestrum, sýningum, rökræðum og alls kyns menningaratburðum á bókasöfnum, skólum og öðrum samkomustöðum á öllum Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum.

Stærsta upplestrarhátíð veraldar?
Hugsanlega verður sett nýtt heimsmet í upplestri þegar mörgþúsund manns hlýða samtímis á upplestur á eigin tungumáli út frá þemanu ,,Töfraheimar Norðursins" á ríflega 2000 stöðum víðsvegar á Norðurlöndum.

Þegar rekkja tekur er mögulegt að bókasafnið þitt bjóði upp á vel fluttan upplestur upp úr Eddunni eða úr hinni hrollvekjandi sögu ,,Låt den rätte komma in"  eftir sænska rithöfundinn John Ajvide Lindqvist.

Snemma um morguninn hlusta norræn leik- og grunnskólabörn á upplestur úr bókunum ,,Dóttir ávítarans" eftir dönsku skáldkonuna Lene Kaaberbøl og ,,Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason.

Ókeypis þátttaka
Bókasöfn, skólar og félagasamtök geta skráð sig frítt hér á heimasíðunni og fá þá send veggspjöld og póstkort. Einnig er hægt að sækja upplestrartexta ársins á síðunni auk hugmyndaskrár með ábendingum um dagskrá.

Velkomin í gamaldags huggulega sögustund í sönnum norrænum anda ,,Í ljósaskiptunum"!
 


.
 

 
            
 
Föreningarna Nordens Förbund
Norra Vallgatan 16
SE-211 25 Malmö, Sverige
Tel +46 (0)40 23 86 80
E-mail projektledare: carl[at]norden.se

 

 

powered by www.smil.as